Menu

Fynboerne

21. Aug. 1927

  1. Góðan dagin litla vina við forum snemma á fætur því nú ætlum við í langan gaungutúr við ætlum ifir á elst þingstað landsins nt. að Hofstöðum á Þorsnesi það er 2 tíma gangur hvora leið eg birja nu dagin á því að reyna að hringja heim. eg bíð við síman í 2 tíma og ekkert gengur svo ég verð að fara en á morgun reini ég aftur jæja nú höldum við á stað, hjer eru allir að fara í utreiðartúr það er sunnudagur elsku vinir gaman væri að þið væruð hjer í dag þetta er langur og erviður gangur við förum ifir holt og hálfófærar mírar og loksins sjáum við Hofstaði það er mjög lítið kot en húsfreijan er myndarleg að sjá við förum þar inn og fáum mjolk að drekka eins og við viljum síðan höldum við afram þar til við sjáum ifir dritsker þar setjumst við að og birjum að teikna hjer er mjög fallegt í suður sjer maður merkilega fjallið Drapuhlíð sem er alltaf með sólskininu í suðvestur er svo Bjarnarhafnarfjall og í norður fjörðurinn og eyjarnar eg mála þarna 2 mindir kl 7 erum við ferðbúnir heim aftur við komum við á Hofstöðum og okkur er boðið kaffi og ég tala þar leingi við bondan mjög skemmtilegan mann og vel að sjer í sögunum síðan höldum við áfram heim á leið þá hittum við knabana sem eru að koma úr utreiðatúrnum glaðir og hressir en við aumingjarnir erum dauðþreyttir og sveittir en loks komum við heim kl 10 þá borðum við og förum svo að hátta. Góða nótt hjartans mamma mín og Lára og litli Reinir og pabbi og allir ég kissi ykkur öll í andanum.

Facts

PDF
21. Aug. 1927

Regional archives of Rangárvalla- og Vestur-Skaftafellssýslu, Iceland

Ólafur Tubals
Ólafur Tubals